
Fréttabréf
Foreldrafélags Hamravalla
3.árg 2.tbl - júní 2011
Nú á vorönninni hefur nóg verið um að vera hjá foreldrafélaginu.
Gjafir til skólans: Foreldrafélagið færði nýverið leikskólanum veglega bókagjöf. Um er að ræða 61 barnabók sem eiga eflaust eftir að nýtast börnunum vel í leik og starfi. Einnig
verða keyptir hátalarar til að tengja við tölvurnar inni á deildum leikskólans og öllum deildum fært hátalarasett að gjöf.
Sveitaferðin: 28. maí stóð foreldrafélagið fyrir hinni árlegu sveitaferð. Líkt og í fyrra var Grjóteyri í Kjós heimsótt og nutu börn og fullorðnir sín með dýrunum í fínasta veðri, grilluðu og áttu saman góðan dag.
Útskriftarhópurinn: Þeim börnum sem voru að útskrifast nú í vor var boðið á Sinfóníutónleika. Foreldrafélagið færði þeim svo tréliti í útskriftargjöf sem eiga vonandi eftir að koma sér vel í upphafi grunnskólagöngu í haust.
Hamravallardagurinn: Á Hamravalladaginn 16. júní verður öllum börnum leikskólans gefnar rellur að gjöf frá Foreldrafélaginu. Þá munu þær vinkonur, Skoppa og Skrýtla, kíkja í heimsókn í boði foreldrafélagsins.
Á haustönn er áfram stefnt að öflugu starfi foreldrafélagsins og þá verður tækifæri fyrir þá sem vilja láta til sín taka í stjórninni að slást í hópinn!
Hafið það sem best í sumarfríinu!
Stjórn Foreldrafélags Hamravalla
Helga Signý, Elfa Rut, Arnbjörg, Bjarney,
Dagný, Sólveig, Guðmunda, Christa,
Tinna Björt og Sólveig Helga.
hamravellir@gmail.com