skólar.is - Hamravellir
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Söfnunarátak fyrir börn á Haítí

28.júlí 2010

Sæl kæru foreldrar og starfsmenn

 

Við hjá Skólum erum að fara að setja af stað söfnun eftir sumarleyfi til styrktar barna sem fóru illa út úr jarðskjálftunum á Haíti. Það eru nú liðnir 6 mánuðir frá því að þessar skelfilegu hamfarir áttu sér stað og langar okkur að reyna að hjálpa börnum á Haíti með því að reyna að safna fé sem væri hægt að nýta vel til uppbyggingar á Haíti. Við höfum haft samband við UNICEF á Íslandi og er ætlunin að það sem safnast fari til þeirra.

 

Talið er að 220.000 hafi týnt lífi og 1,6 milljón manns misstu heimili sín í kjölfar jarðskjálftanna á Haítí. Heimili, skólar og heilsugæslustofnanir urðu rústir einar, auk þess sem skrifstofa UNICEF hrundi. Hjálparstarfsfólk vann út frá tjöldum við bágar aðstæður í margar vikur á eftir. Þrátt fyrir þessar flóknu aðstæður er hjálparstarf UNICEF á Haítí umfangsmikið. UNICEF leiðir hjálparstarfið á sviði vatns og hreinlætis, næringar, menntunar og verndar, en starfar einnig á sviði heilsugæslu. Þó að kastljós fjölmiðlanna hafi nú að mestu horfið frá Haítí er hjálparstarfinu hvergi nærri lokið. Mánudaginn 12 júlí var liðið hálft ár síðan hinar skelfilegu hamfarir áttu sér stað og mun UNICEF minnast þess með því að reyna að segja frá því góða uppbyggingarstarfi sem þegar hefur átt sér stað.

 

Meðfylgjandi viðhengi er yfirlit yfir hjálparstarf UNICEF á ca. 4 mánuðum.

Einnig er hér tengill á myndaseríu sem sýnir hvernig Haítí leit út tveimur vikum eftir að jarðskjálftanir riðu yfir Haítí.

http://www.unicef.org/photoessays/52598.html

 

Hjá Skólum eru ca. 450 börn (foreldrar) og ca. 130 starfsmenn og er ætlunin að Skólar styrki jafnt á móti því sem að foreldrar eða starfsfólk leggja til hjáparstarfsins, þó að hámarki 500 kr. að meðaltali pr. barn eða starfsmanns. Ef að vel tekst til í þessari söfnun, þá getum við í sameiningu verið að safna yfir hálfa milljón fyrir bágstödd börn á Haítí sem mun nýtast vel í það hjálparstarf sem að UNICEF er að sinna á Haítí.

 

Fljótlega eftir sumarleyfi verða skráningarblöð á leikskólunum fyrir ykkur sem geta séð af 500 kr. (má auðvita vera meira eða minna) sem færu til UNICEF á Íslandi til að hjálpa börnum í neyð á Haítí.

Ætlunin er að bæta þessum 500 kr. við leikskólagjöldin í september, þeir sem geta séð af fé í þetta söfnunarátaki skrá nafn, kennitölu og upphæð á skráningablöð sem verður til staðar á leikskólanum fljótlega eftir sumarleyfi.

 

Lifið heil og ég vona að þið eigið gott sumarleyfi

Kær kveðja
Pétur Rúðrik Guðmundsson
Framkvæmdastjóri

Til baka