skólar.is - Hamravellir
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Dagur 1:  Foreldri og barn mæta kl.9.00 í klukkustundarheimsókn. Foreldri er með allan tímann.

Dagur 2:  Mæting kl.9.00-11.00. Foreldri er með allan tímann. Farið verður út, ef veður leyfir svo vinsamlegast mætið klædd eftir veðri, bæði börn og foreldrar.

Dagur 3: Mæting kl.8.00-12.00. (nema ef barn á annan vistunartíma t.d. kl.8.30 eða kl.9.00). Morgunmatur byrjar kl.8.30 og er lokið kl.9.00. Foreldri aðstoðar barnið við að borða morgunmat en þegar það er komið í leik kveður foreldrið barnið. Mikilvægt er að kveðja barnið og láta það vita hvert foreldrið er að fara. „Ég ætla að fara heim að fá mér kaffisopa“ o.s.frv.. Best er að hafa kveðjustundina stutta og fara. Kennarar hringja ef með þarf. Foreldrum er velkomið að hringja og athuga hvernig gengur. Barnið borðar hádegismat sem hefst kl.11.30 og er sótt kl.12.00.

Dagur 4: Mæting kl.8.00-14.00 (nema ef barn á annan vistunartíma t.d. kl.8.30 eða kl.9.00). Foreldrið kveður barnið fyrir morgunverð ef vel gengur. Gott er að barnið sé búið að jafna sig á kveðjustundinni áður en morgunmatur hefst og biðjum við því foreldra að koma með barnið tímanlega. Barnið fær hádegisverð kl.11.30 og fer í hvíld kl.12.00. Barnið er svo sótt kl.14.00 eftir hvíldina
 

Dagur 5: Mæting kl.8.00-16.00 (nema ef barn á annan vistunartíma). Heill dagur ef allt gengur vel.

Þegar barn byrjar í leikskóla þarf foreldri að vera með fyrstu dagana. Oftast tekur aðlögunin u.þ.b. eina viku. Það fer allt eftir þörfum barnsins og hvers það treystir sér til. Mikilvægt er þó að hafa í huga að aðlögun tekur í raun miklu lengri tíma en með þolinmæði, trausti og gleði verða börnin öruggari í leikskólanum með degi hverjum. Góð aðlögun gefur foreldrum tækifæri til að kynnast kennurum og starfsemi leikskólans.

Við bendum á heimasíðu leikskólans /
Símanúmer leikskólans er 424-4640