skólar.is - Hamravellir
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Upplestur á miðvikudaginn 26. maí - Nonnasögur.

21.maí 2010

Miðvikudaginn 26. maí kemur höfundur barnabókanna Nonnasögur, Helga Jóhanna Úlfarsdóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur,  í heimsókn til okkar og les nýjustu bókina sína.


Nonnasögur eru stuttar sögubækur ætlaðar börnum á aldrinum 2 - 6 ára.  Ólíkt mörgum barnabókum fyrir þennan aldurshóp er mikil áhersla á textann og að börnin læri af bókunum.  Ekki aðeins að málfar eflist við að hlusta á lesturinn, bókunum er líka ætlað að kenna góða hegðun.  Málfar bókanna er einfalt en það er gert til að börnin nái dýpri skilningi, sérstaklega þegar kemur að tilfinningum í bókunum.  Með því að orða tilfinningar og útskýra er þannig gerð tilraun til að auka tilfinningagreind barnanna.  Sögupersónurnar eru líka látnar setja sig í spor annarra með von um að auka samkennd við lestur bókanna. 

Til baka